Kaflar

19. Bolli kynntur til sögu. Höskuldur deyr

Hrútur átti þræl sem hét Hrólfur og gaf hann honum frelsi og bústað. Svo óheppilega vildi til að bústaðurinn var inni á landi Höskulds. Það líkaði Höskuldi illa og vildi hann fá greiðslu fyrir landið. Hrólfur leitaði til Hrúts sem sagði honum að borga Höskuldi ekki. Það varð til þess að Höskuldur sendi son sinn Þorleik á vettvang. Hann tók Hrólf og drap og tók allt féð sem hann hafði átt. Eftir það reisti Þorleikur sér bæ á þessum stað.
Þorleikur eignaðist son með konu sinni og hét hann Bolli og á hann eftir að koma mjög við þessa sögu.
Höskuldur átti tvo syni með Jórunni konu sinni: fyrrnefndan Þorleik, og Bárð sem var yngri. Einnig er minnst á dætur þeirra, Hallgerði langbrók og Þuríði, en þær koma ekki við þessa sögu. Höskuldur gerðist gamall og kallaði til sín syni sína, þá Þorleik og Bárð og hálfbróður þeirra Ólaf páa, son Melkorku. Höskuldur bað Þorleik og Bárð að samþykkja að Ólafur fengi jafnmikinn arf og þeir þótt hann væri frilluborinn. Bárður samþykkti það en Þorleikur ekki, enda væri það ekki í samræmi við lög. Höskuldur ákveður þá að gefa Ólafi gullhring og sverð og voru það konungsgjafir, og hringurinn úr gulli. Þorleiki fannst Höskuldur hafa svikið sig. Höskuldur andast, og synir hans ákveða að halda erfidrykkju eftir föður sinn.
frilluborinn: sonur frillu (ástkonu), óskilgetinn

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?