Kaflar

11. Melkorka giftist

Tveir bræður Auðar djúpúðgu voru áður komnir til Íslands og höfðu numið þar land. Helgi bjóla bjó á Hofi á Kjalarnesi. Þangað fór Auður með tuttugu manns. Helgi bauð henni að vera hjá sér með tíu menn. Auður var ekki ánægð með það og fór brott og ákvað að fara til hins bróður síns sem bjó í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi. Hann hét Björn austræni. Hann tók vel við systur sinni og bauð henni að vera hjá sér með allt sitt lið. Þetta líkaði henni vel og var hún hjá honum um veturinn.   
En um vorið ákvað Auður að finna sér stað þar sem hún vildi setjast að. Hún sigldi inn fjörð sem síðar nefndist Hvammsfjörður. Nálægt fjarðarbotninum fann hún öndvegissúlur sínar reknar á land. Hún hafði kastað þeim fyrir borð þegar hún nálgaðist landið. Þarna reisti Auður sér bæ sem hún gaf nafnið Hvammur.
Einn af fylgdarmönnum Auðar hét Kollur, og ömmustelpan Þorgerður giftist honum. Þau eignuðust soninn Höskuld og Auður gaf þeim allan Laxárdal og þau byggðu sér bæ þar sem heitir á Höskuldsstöðum.
öndvegissúlur: súlur sem stóðu sín hvorum megin við tignarsæti höfðingja, hugsanlega skreyttar með goðamyndum; menn hafa þá trúað því að goðin hafi vísað þeim veginn!

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?