Kaflar

15. Ólafur hittir Egil Skalla-Grímsson

Haraldur konungur Gunnhildarson tók Ólafi vel en Gunnhildur drottning þó miklu betur, og var Ólafur hjá þeim um veturinn. Hann gaf þeim marga sjaldgæfa gripi sem hann hafði fengið á Írlandi. En um vorið vildi hann halda heim. Konungurinn gaf honum skip til ferðarinnar, hlaðið timbri og öðrum varningi.
Ólafi er vel fagnað þegar hann kemur heim. Melkorka móðir hans spyr hann margs af Írlandi. En henni sárnaði að heyra að hann hefði ekki fengið að taka fóstru hennar með sér til Íslands. Nú vill Höskuldur að Ólafur biðji sér konu og taki við búinu af Þórði godda fóstra sínum á Goddastöðum. Þegar Ólafur spyr hver sú kona ætti að vera nefndi Höskuldur Þorgerði, dóttur Egils Skalla-Grímssonar á Borg á Mýrum. Þeir feðgar ríða til alþingis á Þingvöllum þar sem allir helstu höfðingjar landsins voru saman komnir ásamt skylduliði sínu. Ólafur var áberandi vel búinn, bæði að vopnum og klæðum. En hann var dálítið hikandi og lét í ljós við föður sinn að honum mundi sárna mjög ef bónorðinu yrði hafnað.
Þeir feðgar fóru til búðar Egils og báru upp bónorðið. Egill, faðir Þorgerðar, tók erindinu vel enda væri Ólafur orðinn frægur af utanferð sinni. En hann sagðist vilja ræða þetta við Þorgerði sjálfa því að enginn maður mundi geta eignast hana án hennar vilja.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?