Kaflar

27. Guðrún og Kjartan við Sælingsdalslaug

Galdrahyskið sem orsakaði dauða Þórðar Ingunnarsonar hrökklaðist frá Skálmarnesi. Þetta voru hjón, Kotkell og Gríma, og tveir synir þeirra, Stígandi og Hallbjörn slíkisteinsauga. Þau fóru suður í Dali og voru um tíma undir verndarvæng Þorleiks, föður Bolla, og gerðu margt illt af sér, drápu til dæmis með göldrum efnilegasta son Hrúts Herjólfssonar, Kára að nafni. Það varð úr að Ólafur pái Höskuldsson og Hrútur gerðu aðför að þessari fjölskyldu. Kotkell og Gríma náðust á flótta og voru barin grjóti til dauða og dysjuð þar sem síðan heitir Skrattavarði. En settur var belgur á höfuð Hallbirni og honum síðan sökkt í Breiðafjörð. Stígandi fékk svipaða útreið.
Ólafur pái hvatti nú Þorleik bróður sinn til að fara úr landi og gerði hann það. En Bolli var áfram hjá Ólafi páa frænda sínum ásamt Kjartani Ólafssyni og bræðum hans.
Þeir Bolli og Kjartan fóru oft til Sælingsdalslaugar. Og þar var Guðrún Ósvífursdóttir jafnan, enda átti hún heima við laugina. Í sögunni segir: „Þótti Kjartani gott að tala við Guðrúnu því að hún var bæði vitur og málsnjöll.“ Ólafur pái hafði áhyggjur og hann reyndi að fá Kjartan til að hætta að hugsa um Guðrúnu því að það væri hugboð sitt að samband þeirra boðaði enga gæfu. Kjartan hélt samt uppteknum hætti um ferðir sínar til Lauga. Bolli var jafnan með Kjartani.
slíkisteinn: gljáandi steinn til að slípa með; sennilega hafa augu Hallbjarnar veið gljáandi

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?