Kaflar

17. Búfé Ólafs rekið niður eftir dalnum

Veturinn eftir brúðkaupið eru Ólafur pái og Þorgerður hjá Höskuldi og Jórunni á Höskuldsstöðum. En þegar voraði fara ungu hjónin að Goddastöðum. Þórður goddi tók sótt um sumarið og andaðist. Þá eignaðist Ólafur pái Goddastaði og allan arfinn eins og þeir Þórður goddi og Höskuldur höfðu samið um þegar Þórður tók Ólaf í fóstur, sjö ára gamlan.
Næsta jörð neðan við Goddastaði var Hrappsstaðir þar sem draugurinn Hrappur hafði flæmt alla burt. Og nú keypti Ólafur jörðina Hrappsstaði og fékk hana fyrir afar hagstætt verð vegna þess að menn voru hræddir við drauginn Hrapp. En jörðin var góð því að þar var mikil laxveiði og selveiði og miklir skógar. Rjóður var höggvið í skóginum og þar safnaðist gjarnan búfé saman, hvort sem veður var betra eða verra. Í þessu rjóðri lét Ólafur byggja reisulegan bæ úr því timbri sem höggvið var í skóginum og einnig úr rekaviði. Bærinn stóð norðan við Laxá, á móti Höskuldsstöðum sem voru sunnan við ána. Enginn maður átti meira kvikfé við Breiðafjörð en Ólafur pái. Um vorið lét hann safna öllu búfé sínu saman reka það áleiðis frá Goddastöðum í átt að nýja bústaðnum. Hann hafði beðið föður sinn að standa úti á Höskuldsstöðum og fara með heillaóskir þegar hann sæi féð renna niður eftir Laxárdalnum hinumegin við ána.
Hvernig ætli Jórunni húsfreyju á Höskuldsstöðum hafi liðið á þessari stundu? Höskuldur hafði gert allt sem hann gat til að Ólafur sonur hans mundi auðgast. En minna virðist hann hafa hugsað um hálfsystkinin, börn Jórunnar!
rjóður: autt svæði í skógi

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?