Kaflar

2. Auður nemur land í Hvammi 1

Tveir bræður Auðar djúpúðgu voru áður komnir til Íslands og höfðu numið þar land. Helgi bjóla bjó á Hofi á Kjalarnesi. Þangað fór Auður með tuttugu manns. Helgi bauð henni að vera hjá sér með tíu menn. Auður var ekki ánægð með það og fór brott og ákvað að fara til hins bróður síns sem bjó í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi. Hann hét Björn austræni. Hann tók vel við systur sinni og bauð henni að vera hjá sér með allt sitt lið. Þetta líkaði henni vel og var hún hjá honum um veturinn.
En um vorið ákvað Auður að finna sér stað þar sem hún vildi setjast að. Hún sigldi inn fjörð sem síðar nefndist Hvammsfjörður. Nálægt fjarðarbotninum fann hún öndvegissúlur sínar reknar á land. Hún hafði kastað þeim fyrir borð þegar hún nálgaðist landið. Þarna reisti Auður sér bæ sem hún gaf nafnið Hvammur.
Einn af fylgdarmönnum Auðar hét Kollur, og ömmustelpan Þorgerður giftist honum. Þau eignuðust soninn Höskuld og Auður gaf þeim allan Laxárdal og þau byggðu sér bæ þar sem heitir á Höskuldsstöðum.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvers vegna vildi Auður ekki þiggja boð Helga bjólu bróður síns og vera hjá honum um veturinn?
2. Hvar bjó Björn austræni? Finndu bæinn hans á landakorti (sjá sagamap.is. Laxdæla saga)
3. Hvað var það sem vísaði Auði veginn að framtíðarbústaðnum?
4. Hvað hét bústaður Auðar djúpúðgu?
5. Hvað hét ömmustelpa Auðar sem settist að á Höskuldsstöðum? (Nafn og föðurnafn!)
6. Hvað merkir orðið öndvegissúlur?