Kaflar

7. Ólafur þarf að fara frá móður sinni

Á bænum Goddastöðum bjó maður sem hét Þórður goddi. Hann var írskur og hafði kona hans farið frá honum og vildi fá helming eigna hans. Þessi kona hét Vigdís og var frænka Höskulds. Nú bað Þórður goddi Höskuld um að hjálpa sér að halda eignum sínum. Fyrir hjálpina bauð hann Höskuldi að taka Ólaf litla að sér og ala hann upp og láta hann síðar taka allan arf eftir sig. Ólafur var þá sjö vetra gamall. Höskuldur samþykkti þetta, og til að milda volduga frændur, sem stóðu með Vigdísi, gaf hann þeim gjafir. En Vigdís sat eftir með sárt ennið og fékk ekkert út úr skilnaðinum við Þórð.
Melkorku líkaði afar illa að þurfa að láta Ólaf son sinn frá sér sem nú óx upp hjá Þórði godda. En Ólafur dafnaði vel og þótti bera af öðrum ungum mönnum. Hann reið til alþingis aðeins tólf vetra gamall og átti góð vopn og klæddist skrautlegum fötum. Föður hans fannst alveg nóg um og gaf honum viðurnefnið pái og festist það við hann og kallaðist hann nú Óafur pái.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?