Leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn
Verð: | 2 990 ISK |
Bókin Ekki meir eftir Kolbrúnu Baldursdóttur sálfræðing er hugsuð sem verkfæri í viðleitni til að sporna við einelti. Í bókinni er fjallað um hinar mörgu tegundir forvarna og tengsl þeirra við uppbyggingu jákvæðs staðarbrags í skóla-, íþrótta- og æskulýðsumhverfinu. Meginhluti bókarinnar fjallar um úrvinnslu eineltismála, viðbrögð og viðbragðsáætlun í eineltismálum.
Mikil áhersla er lögð á að bókin hafi almennt notagildi fyrir fullorðna og börn, gerendur og þolendur.
Höfundur bókarinnar, Kolbrún Baldursdóttir, byggir efnið á áratuga reynslu sem sálfræðingur. Hún hefur komið að málefnum barna og unglinga með fjölbreyttum hætti svo sem með kennslu, ráðgjöf og sem meðferðaraðili.
Verð
2.990 kr.