Stuðningsefni við lesbók og vinnubók
Minnsta málið 1. og 2.
Vanda málið er heildstætt námsefni í íslensku fyrir miðstig. Það að efnið sé heildstætt þýðir að hér er tekið á öllu sem tengist íslenskunáminu á einum stað. Ekki þarf sérstaka bók fyrir málfræði, stafsetningu eða bókmenntir og ljóð. Vanda málið myndar eina heild fyrir miðstigið og skapar samfellu í náminu sem er til mikilla bóta fyrir nemendur, kennara og foreldra.
Lausnir
Um gerð námsefnisins
Námsefnið sjálft
Hugtakaskýringarnar
Upplestur
Skólavefurinn.is
Stuðningsefni við lesbók og vinnubók
LesbækurUpplestur - Frír aðgangur!Allir textarnir úr lesbókunum upplesnir og er hægt að hlaða þeim niður til að skrifa á disk eða iPod. Nýtist þeim vel sem glíma við lestrarörðugleika. Athugið að upplesturinn er öllum opinn án áskriftar. KennsluleiðbeiningarStuðningur við kennara og foreldra. Ítarefni með hverjum lestexta. Hugmyndir og hugleiðingar um hvernig vinna má með textann ásamt aukaverkefnum. FjölvalsspurningarFjölvalsspurningar úr lesbókunum til útprentunar. Kennarar geta nálgast svörin með því að senda okkur póst á netfangið boksala@skolavefurinn.is. Fleiri lestextar til útprentunarLestextar með verkefnum. Upprifjun fyrir próf í 7. bekkHefti (pdf) |
VinnubækurGagnvirkar æfingarFlestar æfinganna úr vinnubókunum Viðbótarefni til útprentunarFjölmörg aukaverkefni, bæði léttari og þyngri, sem hægt er að prenta út og bæta í vinnubókina. Auðvelda kennurum að sníða námið eftir þörfum hvers og eins nemanda.
Til kennara - inngangur að vinnubókumHugsað fyrir kennara áður en þeir hefja kennslu. Mælt er með því að kennarinn fari yfir þennan texta í rólegheitum áður en sjálf kennslan hefst. Hann fær þá yfirlit um helstu þætti sem teknir eru fyrir í vinnubókunum. Til kennara - innlögn með verkefnum í vinnubókum - Nýtt!Innlögn með verkefnum í vinnubók 1 Innlögn með verkefnum í vinnubók 2 Eftir Baldur Hafstað. Handa kennaranum í upphafi hverrar kennslustundar. Gátlistar fyrir nemendur - Nýtt!Ætlaðir nemendum til að merkja við það sem þeir hafa lært í vinnubókunum. HugtakaskýringarÚtskýringar á flestum þeim hugtökum sem unnið er með á miðstigi. Skiptist í málfræði, bókmenntir og stafsetningu. Frábært uppflettirit.
|
AnnaðTil kennara - lausnahefti og matsverkefniVið bendum kennurum á að hafa samband við okkur á netfangið boksala@skolavefurinn.is og fá matsverkefni eða lausnahefti sent í tölvupósti endurgjaldslaust. Til kennara - íslenskukeppni fyrir nemendur - Nýtt!Við bjóðum upp á skemmtilega nýjung, íslenskukeppni fyrir nemendur, eftir að farið hefur verið yfir vinnubók og lesbók í Minnsta málið. Tvær keppnir standa til boða, önnur fylgir lesbók og vinnubók 1 og hin fylgir lesbók og vinnubók 2. Hvor keppni fyrir sig er í tveimur lotum. Allir nemendur í árganginum taka þátt í fyrri lotu. Hver hópur fær blað sem hann útfyllir eftir því sem fyrirmælin segja til um. Í síðari lotu má velja efstu liðin úr og láta þau keppa til úrslita. Kennarar, hafið samband við okkur á netfangið boksala@skolavefurinn.is og fáið íslenskukeppni senda í tölvupósti endurgjaldslaust. Svör fylgja. Kjörbækur - Hljóðsögur með verkefnum - Nýtt!Kjörbókin sem við gefum kost á með Minnsta málið-bókunum er sagan Brasilíufararnir eftir Jóhann Magnús Bjarnason. Hún er í tveimur hlutum. Kennarar, hafið samband við okkur á netfangið boksala@skolavefurinn.is og fáið lausnir við spurningunum sendar í tölvupósti endurgjaldslaust. Lifandi frásagnir í skólum - Nýtt!Hér er hægt að nálgast handbókina Lifandi frásagnir í skólum eftir Baldur Hafstað og Þórð Helgason. Ritun í grunnskóla - Nýtt!Hér er hægt að nálgast hefti um ritun í grunnskóla eftir Baldur Hafstað ásamt glærum. Ritun í grunnskóla (glærur) - (hægrismellið og veljið "save link as") Sýnishorn af bókumHér getið þið skoðað nokkrar blaðsíður úr bókunum. |