SAGA | skolavefurinn.is

SAGA

Gagnvirkir orðaleikir

 

Orðaleikurinn

Gagnvirkar æfingar í lestri og stafsetningu

Léttur og skemmtilegur leikur fyrir yngri nemendur
að þjálfa sig í lestri og skrift. 

Heimastjórnin

Hér er á ferðinni heildstætt námsefni um sögu sem tekur fyrir tímabilið frá aldamótunum 1800 og fram að því að Íslendingar öðluðust svonefnda heimastjórn.  Margskipt efni sem unnið er útfrá markmiðum aðalnámskrár í sögu fyrir 8.–10. bekk.

Sölvi Helgason: Óblíð örlög listamanns á erfiðum tímum

Um er að ræða námsefni sem hentar vel með námsefninu um heimastjórnina. Efnið speglar svolítið annan raunveruleika sem er engu síður mikilvægur og kallað er eftir í námskrá. Í námskrá segir að nemendur  eigi að afla ,,sér upplýsinga úr ritum, af myndum og Netinu um lífshlaup, þjóðfélagsstöðu, verk og einkenni einstakra listamanna og hópa þeirra." Í þeirri upptalningu er minnst á Sölva Helgason. Enn sem komið er er efnið einungis í útprentanlegri útgáfu (27 bls.) en upplesin vefútgáfa bætist við innan skamms.

Námsefni í sögu eftir Halldór Ívarsson

Hér er hægt að sækja heilsteypt námsefni í sögu á unglingastigi í fimm kennsluheftum eftir Halldór Ívarsson. Efnið var upphaflega unnið sem glósur en getur hæglega nýst sem sjálfstætt námsefni.

Úr sveit í borg: Vinnubók

Bókin Úr sveit í borg er víða kennd í 8. bekk og við bjóðum upp á vandaða vinnubók eftir Halldór Ívarsson sem unnin er með hliðsjón af henni og Aðalnámskrá.  Er bókin hér í fjórum hlutum sem saman telja 40 blaðsíður. Er annars vegar um að ræða nemendabók og hins vegar kennarabók með lausnum. 

Sjálfstæði Íslendinga 1 og 2: Vinnubækur

Sjálfstæði Íslendinga eftir Gunnar Karlsson er enn kennd víða í skólum enda góð bók sem hélt ágætlega utan um þá sögu sem hún sagði. Við bjóðum því enn upp á vinnubækur sem fylgdu bókum 1 og 2.

Tímalínur

Tímalínur geta verið gagnlegar til að læra sögu. Það að þær séu notaðar sem heildstætt námsefni er á margan hátt freistandi og býður upp á marga möguleika. Við bjóðum upp á þrjár tímalínur með verkefnum sem við hvetjum alla til að nýta sér hvort heldur kennara eða einstaklinga sem vilja fá betri innsýn inn í sögu lands og þjóðar.

Snorri Sturluson og Sturlungaöldin

Í námskrá er skráð að nemendur eigi  að geta skoðað íslenskt miðaldasamfélag í ljósi kunnugs einstaklings, t.d. Snorra Sturlusonar, Guðmundar biskups góða eða Guðríðar Þorbjarnardóttur. Þetta hefti tekur fyrir ævi Snorra Sturlusonar og allt þar til Íslendingar lenda undir vald Noregskonungs árið 1262. Heftið telur 29 blaðsíður með góðum verkefnum. Efnið er í útprentanlegri útgáfu (27 bls.) og upplesin vefútgáfa bætist við innan skamms.

Fólk í sögunni

Hér bjóðum við upp á stutt æviágrip valinkunnra einstaklinga. Sögufrægir Íslendingar býður upp á æviágrip Íslendinga en Fólk í sögunni geymir æviágrip erlendra einstaklinga. Persónurnar eru frá ýmsum tímum og verður nýjum nöfnum bætt við reglulega. Tilvalið að nota efnið í hópkennslu eða sem viðbót við annað efni.

Síður

Subscribe to RSS - SAGA