Þetta efni sameinar þrjár námsgreinar, myndmennt, ritun og samfélagsfræði, en rík áhersla er lögð á það í námsskránni að samþætta hinar ýmsu námsgreinar. Er hér á ferðinni bæði vandað námsefni og skemmtilegt, sem enginn kennari ætti að láta framhjá sér fara. Efnið hentar vel nemendum í yngri bekkjardeildum (1.-4. bekk).

Í þessu efni er rakin sagan af fundi Íslands og sagt m.a. frá Naddoddi, Garðari Svavarssyni, Hrafna-Flóka og Náttfara. Búið er að laga textann að yngri nemendum.Góð verkefni fylgja með.
Efnið er unnið upp úr þjóðháttum Jónasar frá Hrafnagili. Kaflaheitin í fyrra heftinu eru: Túnvinna, sauðburður, rúning, fráfærur og önnur verk. Seinna heftið fjallar svo um smalaferðir, sel, grasvinnu og fl. Þetta er efni sem hentar nemendum alveg frá 4.–5. bekk og upp úr. Mikilvægt efni til að tengja inn í fortíðina. Verkefni og svör fylgja.

Efni sem flokkast undir samfélagsfræði er nokkuð víðtækt og meðal efnis sem mikið hefur verið sótt á vefinn er efni um landnámið og störf til sveita. En það er um að gera að fylgjast vel með samfélagsfræðinni því við munum reglulega bæta við nýju efni.