Ýmsar síður | skolavefurinn.is

Ýmsar síður

Krossgátur og þrautir

Hér er að finna fjöldann allan af stökum krossgátum til útprentunar, skemmtilegum þrautaheftum og sudoku-þrautum. Nú ætti engum að leiðast.

Þýska

Nokkrar laufléttar málfræði- og orðaforðaæfingar í þýsku.

Smíði

Á þessari síðu getið þið nálgast námsefni í steinsmíði eftir Árna Jón Hannesson auk hönnunarverkefna eftir hann. Þá er hér einnig að finna heildstætt námsefni í málmsmíði eftir Egil Þór Magnússon.

Útileikir

Hér getið þið nálgast skemmtilega útileiki fyrir hópa. Annars vegar er um að ræða ratleik og hins vegar minnisleik. Það er Árni Jón Hannesson sem hefur veg og vanda af þessu efni.

Námstækni

Námstækni er námsgrein sem mætti vera meira af. Hér bjóðum við upp á útprentanlegt efni fyrir unglingastig sem bæði hentar kennurum, nemendum og foreldrum.

Tímarit

Hér er hægt að nálgast tímalaus tímarit með ágætu afþreyingarefni, sögum, þrautum, ljóðum o.fl.

Sudoku

Sudoku eru góðar þjálfunaræfingar. Hér er boðið upp á skemmtilega og aðgengilega útgáfu af þessum leik, sem bæði er hægt að glíma við gagnvirkt og/eða prenta út. 

Síður

Subscribe to RSS - Ýmsar síður