Íslenska 2: Málfræði, málnotkun og stafsetning
Á þessari síðu er að finna allt efni sem flokkast undir málfræði, málnotkun og stafsetningu en auk þess er þar einnig að finna efni í ritun og skrift. Við skiptum efninu í stærri verk og stök minni verk. Stærri verk eru það sem við köllum stundum heildstæða vefi, þ.e.a.s. þar fara saman útprentanlegt efni (bækur, hefti og stök blöð) og vefefni (vefsíður, hljóðskrár og gagnvirkar æfingar).
Íslenska 2
Tungutak 1: 2. Nafnorð
Tungutak I er vinnubók í íslensku á unglingastigi grunnskólans ásamt Tungutaki II og Tungutaki III. Tungutak er hluti af heildarnámsefni í íslensku sem Skólavefurinn hefur unnið handa unglingastigi í samræmi við ákvæði nýrrar aðalnámskrár. Í Tungutaki er um að ræða afar fjölbreytileg verkefni, ekki aðeins í málfræði og stafsetningu, heldur einnig og ekki síður í almennri málnotkun og framsetningu texta. Stílfræðileg atriði eru rædd ásamt hugtökum í bókmenntafræði og bragfræði.
Efninu er ætlað að glæða áhuga ungmenna á íslensku máli og menningu og styrkja þá í að ræða um tungumál og texta með hjálp lykilhugtaka í málfræði.
Tungutak 3: 2. Orðflokkar 1 (prent)
Orðflokkarnir eru efni þessa kafla. Nafnorð, lýsingarorð, sagnorð, fornöfn, greinir, atviksorð, samtengingar o.s.frv.
Tungutak 3: 1. Allrahanda 1 (prent)
Þessi kafli er að stórum hluta upprifjun frá fyrri árum og undirbúningur fyrir samræmt próf.
Tungutak 2: 4. Sagnir 2 (prent)
Í þessum kafla höldum við áfram með sagnorðin og lítum á myndir sagna, meira um tíðir, sterka og veika beygingu, ri-sagnir o.fl.
Tungutak 2: 3. Allrahanda 2 (prent)
Í þessum kafla er farið yfir samsett orð, stafsetningu, viðskeyti, fallbeygingu, ritun o.fl.
Tungutak 2: 2. Sagnir 1 (prent)
Í þessum kafla er farið yfir sagnorðin - tíð, persónur, tölu og hætti.
Tungutak 2: 1. Allrahanda 1 (prent)
Í þessum kafla er farið yfir ritun, lýsingarorð, fallbeygingu, orðasambönd, málsnið, þýðingar, ljóð o.fl.
Tungutak 1: 8. Framburður og stafsetning (prent)
Í þessum kafla er farið yfir framburð og stafsetningu. Við lítum m.a. á vestfirskan einhljóðaframburð, sunnlenskan hv-framburð, raddaðan framburð o.fl.
Tungutak 1: 7. Fornöfn (prent)
Í þessum kafla er farið yfir persónufornöfn, spurnarfornöfn, eignarfornöfn, ábendingarfornöfn, afturbeygt fornafn og óákveðin fornöfn.