Káta - Afmælisdagur Kátu (Sögur með verkefnum)
Mjög gott lesskilningsverkefni fyrir nem. í 3. og 4. bekk eftir Jónu Fanneyju Svavarsdóttur.
(1 bls.)
Á þessari síðu er að finna allt efni sem flokkast undir lestur, lesskilning og bókmenntir, en auk þess falla liðirnir hlustun og ritun hér inn líka. Við flokkum efnið í stærri og minni verk. Stærri verk eru það sem við köllum heildstæðir vefir þar sem saman fer útprentanlegt efni og vefefni. Minni verk eru meira stök verkefni.
Mjög gott lesskilningsverkefni fyrir nem. í 3. og 4. bekk eftir Jónu Fanneyju Svavarsdóttur.
(1 bls.)
Mjög gott lesskilningsverkefni fyrir nem. í 3. og 4. bekk eftir Jónu Fanneyju Svavarsdóttur.
(2 bls.)
Sagan af Labba pabbakút eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur er afar skemmtileg saga og hér er búið að útbúa hana sem heildstætt námsefni í íslensku fyrir yngri nemendur. Efnið samanstendur af 7 köflum og skiptist í leshefti og vinnubók. Þá er einnig hægt að prenta út staka kafla. Útprentanlegri útgáfu fylgja verkefni og svör. Vefútgáfu fylgja gagnvirkar æfingar og leikir.
Hér er á ferðinni vandað heildstætt námsefni sem byggir á hinni stórskemmtilegu sögu Vilborgar Dagbjartsdóttur, Sögur af Alla Nalla. Efnið samanstendur af 13 köflum sem bæði er hægt að nálgast í útprentanlegri útgáfu og í vefútgáfu. Útprentanlegri útgáfu fylgja verkefni og svör. Vefútgáfu fylgja gagnvirkar æfingar og leikir.
Þorvalds þáttur víðförla tengist kristnitöku Íslendinga með beinum hætti og er skemmtileg og gagnleg lesning. Verkefni og fróðleiksmolar fylgja.
Hér bjóðum við upp á hina sígildu sögu af Tuma þumli í þýðingu Þorsteins Erlingssonar, en ritháttur á stöku stað færður til nútímans. Sagan er boðin bæði í útprentanlegu formi með fjölda verkefna og á vefsíðuformi með gagnvirkum æfingum. Sagan telur 14 kafla og tilvalið að nota sem ítarefni.
Við kynnum til sögunnar glænýtt kennsluefni eftir Sigríði Ólafsdóttur kennara við Flataskóla í Garðabæ. Nefnist það Lesum lipurt og létt og inniheldur lestraræfingar fyrir byrjendur. Eins og segir í inngangi bókarinnar byggir hún á lestraraðferð sem nefnd er orðmyndaaðferðin. Þar byrjar kennarinn á að lesa textann upphátt - Síðan les nemandinn hann upphátt þrisvar sinnum.
Fyrir þá sem eru að byrja að læra að lesa bjóðum við upp á skemmtilegar og stigskiptar þjálfunarbækur í lestri sem unnar eru af Berglindi Guðmundsdóttur. Er hér um mjög vandaðar bækur að ræða sem notaðar hafa verið í kennslu með góðum árangri.
Hér er á ferðinni hin sígilda saga um litlu gulu hænuna sem finnur hveitifræin. Er um að ræða námsþátt á 6 blaðsíðm þar sem sagan sjálf tekur yfir 3 blaðsíður og verkefnin 3. Er efnið einkum hugsað fyrir 2. og 3. bekk, en gæti einnig hentað duglegum nemendum í 1. bekk.
Efnið hentar bæði í almennri bekkjarkennslu og í einstaklingsmiðuðu námi.
Skemmtileg saga sem börn hafa gaman af að lesa. Efnið telur samtals 6 blaðsíður þar semsagan sjálf tekur yfir 4 blaðsíður og verkefnin 4. Hentar vel fyrir 2. og 3. bekk, en gæti einnig hentað duglegum nemendum í 1. bekk. Efnið hentar bæði í almennri bekkjarkennslu og í einstaklingsmiðuðu námi. Þá geta áhugasamir foreldrar prentað efnið út og unnið með börnum sínum á kvöldin.